Kristín
Vinna
13.10.2008 20:54:36 / stína

Hætt að blogga :)

Hæhæ

Ég nenni ekki að blogga lengur, Verð bara með barnaland :)

» 17 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 19:24:32 / stína

24 ára!!

Ég vaknaði í morgun þegar dóttir mín fór að rumska ég knúsa hana og sá að Sævar var farinn í vinnuna. Ég fer framm og fæ mér að borða og gef Bogeyju D dropana sína en é minn eini það tók mig 1 tíma að fatta að ég ætti afmæli í dag haha :)



» 20 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 13:01:58 / stína

Pása

Þið hafið eflaust tekið eftir því að ég er ekki búin að blogga lengi og ættla að halda því örlítið lengur áfram. Er samt með barnalandið og það koma fljótlega inn nýjar myndir þar inn af ágúst :)

Annars er allt gott að frétta hjá okkur, erum upp í sveit en förum annað hvort á morgun eða hinn heim því að Sævar er að verða búinn með ritgerðina :)

Bless í bili og endilega kvitta inn á barnaland :)

www.bogey.barnaland .is

» 20 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 18:40:08 / stína

Bíð sallaróleg

Sæl verið þið.

Þá er ég búin að útskrifast úr listnámsbrautinni og á bara oggulítið eftir fyrir stúdentinn, get ekki verið glaðari :) Veislan var síðan haldin hér heima á laugardaginn. Ég hefði ekki getað gert þetta án þess að hafa mömmu. Hún sá um veitingarnar en ég bað um að fá að gera hrískökuna til að líta ekki illa út :þ Ég hef aldrei áður verið beðin um að fara út úr eldhúsinu mínu eins og á laugardaginn, ég átti bara að vera frammi með lappirnar upp í loftið en ég hafði eiginlega ekki neina þolinmæði til að vera það löt :$
Veislan heppnaðist vel ég var svo ánægð með gjafirnar.
Er með nokkrar myndir frá veislunni inn í ''Myndasöfn''.

Á sunnudaginn vakti Sævar mig kl 11 því við vorum að fara til Selfoss eftir klukkutíma í tvöfallt afmæli. Hún Hulda María littla frænka og Hulda tengdó áttu nefnilega afmæli. Þar var stór og mikil afmælisveisla og nóg af kræsingum.

Í dag er þrið. 20 maí og bara 9 dagar í skráðann fæðingardag. Barnið er alltaf á iði og stundum fylgja verkir með sem er bara betra þá veit ég að það er eitthvað að gerast :haha: Fór í 20 mín göngutúr eftir Leiðarljós  í dag enda geggjað gott að labba úti eftir rigningu og svo er ekki neinn vindur.

Núna allavega næstu dagar/vikur fara í að slaka á og bíða, en ég kem með blogg ef það er eitthvað að gerast hér í millitíðinni :)



 


» 18 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 12:05:44 / stína

Myndir

Setti inn myndir frá útskriftinni 17 maí
Útskriftin var haldin í Hallgrímskirkju 16 maí

» 18 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 12:15:42 / stína

Bloggpása

Sæl öll ættla núna í bloggpásu er löt að skrifa hérna inni núna.

Setti inn nokkrar myndir frá ættarmótinu en ég tók eiginlega eingar þegar allt fólkið kom :s

» 16 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 21:31:48 / stína

Prófin búin !

Í morgun kláraði ég síðasta prófið :haha:.

Ég var ekki aðgerðarlaus þegar ég kom heim. Ég hef beðið heillengi eftir þessum degi til að byrja að þrífa og strauja barnafötin og loksins rann hann upp. 
Þá er bara eftir að kaupa dínu í barnarúmið og þvottakörfu og  raða fötum ofan í tösku sem á að fylgja með á spítalann, en þá erum við held ég bara til í slaginn. :!:

Núna er bara að bíða í svona 1 - 5 vikur. Ég ættlaði ekki að vera á miklum þeytingi þennan síðasta sprett því ég ættla að eiga hér í Keflavíkinni. En reyndar er ættarmót næstu helgi svo verður afhending einkunna 14 og svo 16 útskrifast ég úr Listnámsbrautinni 17 verður lítil fjölskyldu veilsa, svo 18 verða tvær afmælisveislur. Verðum s.s. upptekin næstu helgar og lítið heima :haha: vonum að barnið verði kjurt á sínum stað alla vega til 29 segjum það. ;)

Jæja nenni ekki að sitja lengur á rassinum bless í bili.
     

» 17 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 16:05:52 / stína

Þvílíkur Miðvikudagur

Á miðvikudaginn kláraði ég munnlega prófið í ensku með stæl og fékk mjög gott út úr því. Fór svo á kaffihús að hitta Nönnu og það var spjallað út í eitt. Eftir það ákvað ég að drífa mig heim, klukkan var hálf 4 svo ég vissi að ég myndi ná Leiðarljósi hehe.

Ég brunaði Krisnglumýrarbrautina en þegar ég var komin til Garðabæjar fór bíllinn upp í 5000 snúninga :!: Þetta var undarlegt, ég legg bílnum þarna rétt hjá Olís og prufa að fara aftur af stað. Nei nei hann þandi sig bara og var kyrr sem steinn. Þá var ekki annað til í stöðunni en að hringja í Sævar upp í vinnu.

Hann skoðaði bílinn en á meðan hann var að spjalla við tengdapabba þá flautar einhver á okkur. Það var enginn annar en hann Pétur Bjarnason vinur okkar og unnusti Kristjönu vinkonu. Hann fer að athuga bílinn með Sævari og á endanum komust þeir að því hvað væri að. Það hafði brotnað öxull, ussuss.

Pétur var svo æðislegur að hann bauðst til að draga bílinn á öruggan stað og við þáðum það með þökkum. Hann bauðst svo líka til að keyra okkur upp í Læknagarð. Bara svo það fylgi nú með þá var hann Pétur í vinnunni en hann ákvað að taka vinina framyfir. 

Á leiðinni aftur inn í bæinn fatta ég að við yrðum að sleppa fermingunni sem yrði daginn eftir hjá sem átti að halda í Hestakránni. Pétur bauð okkur að nota jeppann sinn. Í fyrstu fannst okkur hann vera búinn að gera alveg nóg fyrir okkur og ættum ekki að þiggja meira frá honum. Pétur sagði okkur að það væri ekki annað til í stöðunni en að fá hann í láni því þau væru ekkert að nota hann eins og er. Við þáðum þá boðið með þökkum.

Daginn eftir Sumardaginn fyrsta fórum við snemma af stað upp á Selfoss og drógum bílinn þangað. Hittum tengdó og vorum á hjá þeim til klukkan 3 en síðan héldum við áfram ferðalaginu upp í sveit :haha: Frænka mín var mjög fín og maturinn var geggjað góður. Síðan var spjallað við ættingjana á meðan maður lá á meltunni. Mamma komst samt ekki því hún var hjá afa á sjúkrahúsinu á Selfossi því hann var orðin mjög veikur.

Við fórum heim í sveitina og  pabbi gaf okkur fullt af nýslátruðu nautkjöti  en svo lá leiðin aftur í bæinn. Sævar fór þá að vinna og vann alla nóttina en ég fór heim og tróð kjötinu í frystinn þótt ég hefði enga trú á að það myndi takast. 

Þegar ég var sofnuð hringdi pabbi í mig eftir miðnætti og lét mig vita að hann ástkæri afi minn væri fallinn frá. Hann var orðin svo gamall og veikur enda orðinn 90 ára.

Bless í bili. :d

» 19 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 06:38:49 / stína

Góðan daginn góðir hálsar

Vaknaði kl hálf sex í morgun og lá eins og slitti til kl 6 en þá fór ég loks frammúr. Garnirnar voru farnar að gaula svo ég varð að taka tillit til kallsins :)
Núna eru bara tveir dagar eftir af venjulegum kenslutímum :!: Fer í hlustunarpróf í Þýs í dag en síðan munnlegt próf í Ens á miðvikudaginn síðan ættla ég að kíka á Nönnu Hlín sem var með mér í bekk í grunnskóla. Ég þarf líka að fara með Ástu systir og fynna fermingargjöf handa einni frænku okkar sem verður fermd á Fimmtudaginn svo er bara að byrja að læra undir lokaprófin :haha::haha:

Í dag förum við í hefbundið eftirlit hjá Halldóru ljósmóður og svo í vaxtarsónar en ég skrifa meira um það í hinni síðunni. :d

» 17 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 21:07:31 / stína

Ég er ekki að trúa þessu!

Eruð þið að trúa því kæra námsfólk að það eru aðeins 7 daga eftir af skólanum :!: Ég á eftir 5 skóladaga eftir s.s. 5 skólatíma eða 10 klukkutíma eftir omg :haha: maður getur bara tapað sér :!: Ættli ég byrji ekki bara að læra undir enskuprófið næsta þriðjudag og taka alveg vikur í hann.  Get ekki beðið að klára prófin eins og flestir held ég :)
Núna er ég með þriðju bjórkrúsina af klaka og er að bryðja með þvílíkum látum mmm.. Sævar er hættur að spá í briðjuhljóðunum því hann veit mér fynnst þetta svo gott og hressandi.

Er búin að setja inn tvær bumbumyndir inn á 
http://www.barnaland.is/barn/68756/ 
Langar til að kasta góðri kveðju til allra sem eru búin að vera að fylgjast með okkur þar  :)

Bið að heilsa ykkur í bili :!:

» 23 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 14:26:51 / stína

Fimtudagur

Núna er ég upp í bókasafni og er að bíða eftir enskutíma. Það átt að vera tímaritgerð í gær en að var fært yfir til dagsins i dag. Á mogun fer ég síðan í þýskupróf en ég er ekkert byrjuð á því. Tek kvöldið og part af nóttinni í það :$
Það er annars ekkert að frétta alla vega ekkert merkilegt nema að jú fyrsta prófið verður 28 apríl vei !! og hitt verður 6 maí. Gott að hafa góðan tíma til undirbúnings.
Ættla að halda áfram með lesturinn. Sæl að sinni :)

» 20 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 19:23:56 / stína

Er að batna

Var ekkert svo heppin aðfaranótt fimtudags, var með þennan ógeðslega brjóstsviða. Vissi reyndar ekkert hvað var að mér því að ég hef aldrei fengið brjóstsviða en Sævar var ekki lengi að svar spurningunni minni. Fékk mér mjólkuglas og reyndir að fara aftur að sofa. Um morguninn var mér frekar íllt í maganum og spurði Sævar hvort að það eigi að fylgja brjóstsviðanum en eftir klukkustund varð mér svo flögurt að ég fór beinustu leið og kraup að klósettinu. Sævar var eitt spurningarmerki og ég líka. Jæja nóg með það. Ég hringdi síðan í Halldóru ljósmóður og hún hringdi í mig síðar um daginn en í millitíðinn meðan ég beið eftir hringingunni hennar að þá fékk ég verki yfir alla kúluna á kortersfresti í ca tvo tíma, ég reyndi að halda mér rólegri en hringdi í Sævar í vinnuna og sagði honum frá þessum verkjum. Loksins hringdi ljósan en þá þurfti ég að spyrja hana um fleira en bara hvað ég mætti taka inn við brjótsviða. Hún gat ekki greint að ég væri byrjuð að fá samdrætti en það er samt eðlilegt að ég færi að finna fyrir þeim núna enda komin 32 vikur á leið. Henni datt í hug að þetta væri magapína en ég gat ekki verið viss en jánkaði því að svo gæti verið. kryddaðan mat á helst að forðast á meðgönu og ég er sammála því að ég fékk mér mat kvöldið áður sem vitaskuld myndi passa við rökin :haha: Þegar á daginn leið fékk ég þessa blessuðu beinverki um allan skrokkinn og jæja ég lá fyrir í 3 tíma en kom mér á fætur til að horfa á leiðarljós svo í nótt var ég mest allan tíman að vellta mér framm og til baka út af beinverkjunum en náði að sofna um fimmleiði held ég og svaf til hálf níu og ættlaði sko ekki í skólann. Svefnin lagar flest allt enda er ég ekkert búin að finna fyrir verkjum í allan dag :) Fékk líka félagsskap því að kærasta bróður míns kíkti í heimsókn og við horfðum á tvær bíómyndir saman og jöppluðum á nýbökuðum brauðbollum og muffins nammnamm. Sævar fer svo að koma bráðum með nýja gasgrillð okkar víha. Húsasmiðjan var að opna hér í Keflavíkinni og fyrstu 15 grillin voru á tilboðsverði haha og hann krækti í eitt í morgun á leið sinni í vinnuna.  
Á morgun eru Ásta systir, Hilmar og börnin að koma í kvöldmat enda komin tími til því þau hafa ekki komið hingað síðan við fluttum. Veit ekkert hvað við höfum á boðstólnum en það er alltaf gaman að bjóða í mat :)

Veitt ekkert hvort ykkur fannst eitthvað merkilegt við þessa færslu en ég naut mín hehe

Góða helgi

» 23 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 21:52:13 / stína

Gott páskafrí

Lærði eins og múkki í byrjun vikunar áður en ég fór upp í sveit. Fór í fermingarveislu hjá frænku minni á skírdag, hún var ofboðslega flott stelpan. Síðan fór ég með mömmu og pabba heim eftir veisluna en á leiðinni upp í hrepp kíktum við við hjá Stebba frænda. Þau sýndu okkur 16-17 ára gamalt video af okkur krökkunum sem ég hef aldrei séð og svo sáum við líka video frá ættarmótinu sem var í fyrrasumar. Það var hlegið svo mikið að við mamma fengum harðsperrur í hálsinn.   
Svo kom Sævar í sveitina á Páskadag með nýtt páskaegg því að hitt hafði bráðnað í morgunsólinni um morguninn upp á ísskáp. Heppni að við vorum búin að borða innanúr því samt hehe.

 
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 16:34:13 / stína

Helgin komin og farin

Á laugardaginn sváfum við út en eftir hádeigi ákváðum við að fara út að borða í bænum á veitingastaðnum Vegamót. Það var þrusugott fengum okkur kjúkklinga burito nammnamm. Eftir það kíktum við í heimsókn til afa og ömmu sævar en síðan fórum við í Kringluna að skoða formúlubílinn. Hann var ekkert svo stór eins og ég ýmindaði mér hann. 
Ég ættla ekki að lýsa leikritinu  þ.e.a.s. ef einhver á eftir að sjá það :haha:
Við skemmtum okkur allavega vel. Það var góð músík og barnið sparkaði allan tímann. Ég lagði jakkanum mínum utan um kúluna til að dempa bassahljóðið hjá því en það voru samt ekki þannig læti að maður hefði þurft að halda fyrir eyrun. Svaka stuð allan tímann :d Hefði ekki vilja missa af þessu, og já söngvararnir voru góðir.
Alla vega vil ég koma einu til skila ef einhver ættlar að sitja framarlega að hafa ekki áhyggjur að sjá ekki nóg ;) það kemur seinna í ljós hvað ég á við :lol:
 

  

» 16 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 12:02:42 / stína

Komin í páskafrí :)

Sit upp í bókasafni og á eftir að bíða hér í ca. tvo og hálfan tíma. En ég læt fara vel um mig er t.d. með Ipodinn á eyrunum og með Topp og nammi mér við hlið og að sjálfsögðu er ekki hægt annað en að vera á netinu því tímin fíkur þá frá manni  :haha:
Þegar ég kem heim ættla ég að taka til og fara jafnvel í göngutúr. Æðislegt veður ohhh yes.
Var í þýsku áðan og það var forfallakennari sem kenndi okkur. Það var eingin önnur en Erna Arngrímsdóttir en hún kenndi mér sögu í hittifyrra sem er alveg dásamlegur kennari. Hún er ein gávaðasta kona sem ég hef kynnst á æfinni, hún þekkir sögu okkar íslendinga og sögu evrópu eins og littla putta á sér, ég er ekki að ýkja.
Á morgun ættlum við skötuhjúinn að kíkja til afa hans og ömmu sem búa í bænum áður en við förum á J.C.Super Star, gaman gaman :d
Ættli það verði ekki skynsamlegast að vera svo dugleg að nota páskafríið í lærdóm. Þótt ég sé bara í 2 áföngum þá er þetta drullu mikið (afsakið orðbragðið) sem þarf að klára. Ættla líka að nota tíman með fjölskyldunni. Er ekki búin að vera upp í sveit síðan um áramótin. :!:
Annars er þetta það eina sem ég hef um að skrifa núna.  



» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan
Könnun
Hvenær kemur fyrsti snórinn ?
í lok ágúst
0 atkvæði

22 september :o)
1 atkvæði

September
0 atkvæði

Oktober
0 atkvæði

Nóvember
0 atkvæði

Desember
1 atkvæði

Kemur ekki þetta haust
0 atkvæði

Janúar
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1223 dögum
Afmælið mitt :)