Kristín
Vinna
30.05.2007 11:22:04 / stína

5 dagar til stefnu

Við höfum ekki komist mikið í tölvuna undanfarið út af því að það vantaði nýja viftu í hana svo hún myndi kæla sig betur. Sævar tók sér góðann tíma til að koma nýju viftunni vel fyrir og núna heyrist ekkert skröllt í tölvunni.

Við fórum að passa Ara litla á mánudagskvöldið á meðan þau fóru í bíó. Hann er að taka tennur núna en hann var ekkert erfiður á meðan við pössuðum hann. Í gær var ég að undirbúa fyrir sýninguna mína og bara 5 dagar til stefnu en maður þarf að snúast soldið í kring um þetta. Svo passaði ég Ara á meðan Kristjana fór til tansa. En seinna um kvöldið þá fórum við og Kristjana og Pétur á pöbbinn og drukkum allar tegundirnar sem voru á barnum eða allavega  næstum því. ;)

Í dag miðvikudag kemur bróðir Sævar í starfskynningu.  Ef hann verður spenntur fyrir því sem stóri bróðir er að vinna við þá er aldrei að vita nema hann læri líffræðina líka. Í kvöld baka ég svo Pizzu handa þeim, og aldrei að vita nema við skellum okkur í bíó :haha:

Síja     :haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2007 10:27:58 / stína

Í dag er laugardagur

Hæ öll!!

Við Sævar sváfum út í gærmorgun en deifum okkur upp á Selfoss til tengdó og vorum þar yfir nóttina. Alltaf gott að koma til þeirra, við héldum á litlu frænkunni okkar, hún er svo nett. Núna í augnablikinu erum við að bíða eftir að ríkið opnar, við verðum að hafa nóg af öli áður en lagt er í hann. ;)

Hlakka  mikið til að hitta liðið og eins gott að það mæti sem flestir. Því fleirri því betra :!:

Læt heyra mér eftir helgi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 10:15:26 / stína

Miðvikudagur

Ættarmót næstu helgi !!!

Það eru alltaf tvö ættarmót hvert einasta ár s.s. náskildustu ættingjarnir koma saman :)

Ættlum að kíkja á tendó upp á Selfoss á leiðinni. Bless í bili

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 13:59:01 / stína

18 maí 2007

Hæ öllsömul. Í dag á amma afmæli 93 ára :)

Í gær eignaðist systir Sævars litla stúlku, 13 merkur og hún er gullfalleg :) ég er ekki búin heldur hittist það svo skemmtilega á að nýbakaða amman átti afmæli í gær. Þannig að amman fékk mjög flotta gjöf sem sló öll met.

Ættlum að kíkja á prinsessunna og nýbökuðu foreldrana í dag.   

Heyrumst :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 01:32:49 / stína

Aðfaranótt fimtudags :)

Náði í einkanirnar í dag og þær eru bara lala... svo fór ég að vinna frá hálf 4 til 22 kom svo heim fékk mér bjór og horfði á TV. :lol: Á morgun ættla ég svo upp í sveit..því að mamma og pabbi ættla að halda smá afmælisveislu handa ömmu(á samt ekki afmæli fyrr en á Lau). Amma er svo spræk, það er dekrað við hana á eldrimannaheimilinu hlakka til að hitta hana á morgun, kanski verður hún komin með nýtt permanett. Ég frétti svo seint að það yrði haldið upp á daginn hennar á morgunn,annars hefði maður keypt eitthvað sætt handa henni ekki blóm heldur eitthvað annað úuúú Kóngabrjóstsykur það er málið, veit að það er í uppáhaldi hjá henni. :D

Heyrði í Sævari í dag (hann er í Osló) svo næ ég í hann á föstudaginn snemma, er orðin svaka spennt....hann vill alveg ólmur gefa mér eitthvað en ég veit samt að það verða ekki undirföt :cry: nei djók haha hann kaupir bara % handa mér eins og síðast. Vei! :haha:

 ;) Love you all ;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 04:20:44 / stína

Aðfaranótt þriðjudags :)

jæja núna er klukkan 10 mín yfir fjögur að nóttu og var að klára fimmta listavekið og fimm verk eftir :D

Þetta er svo gaman og vonandi get ég haldið þessu áfram þegar sýningin verður búin :) en það er bara draumur sem ég vil ekki vakna úr :lol:

Jájá dagurinn í gær var mjög fínn. Var með Kristjönu og Ara allan daginn og við fórum í sund. Ari var alveg að fýla sig þarna í sólarblíðunni 8)  svaka fjör enda var hann mjög þreyttur eftir það og sofnaði af og til. Fengum okkur svo um kvöldið ölarra og grilluðum kjúlla sem var delissiuss hvernig sem maður orðar það,svo tók ég taxann heim sem er bara lúxuss.

Jæja ég er orðin soldið sibbinn núna ættla að leggja mig. :haha: :haha:

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 20:14:28 / stína

Miðvikudagurinn mikli !!!

Komiði öllsömul blessuð og sæl :)

Jæja þessi dagur var bara prýðilegur. Kláraði síðasta prófið í morgun og aðeins örlögin vita hvað í ósköpunum ég fæ út úr þessu öllusaman. Æðislegt veður var í dag reyndar lítil sól en það er ekkert hættulegt. Þó að ég tali um að veðrið væri gott þá var ég ekkert úti. Í stað þess að njóta sólargeislanna tók ég til í íbúðinni. Aaaaaahhhh mér líður miklu betur, Það var allt tekið í gegn megisegja henti sturtuhenginu í þvottavélina og TAarra... haha jájá...  :haha:

Þegar Sævar var komin heim úr vinnunni þá var klukkan að ganga 5 og ég var ekkert búin að spá hvað ég ætti að hafa í kvöldmatinn usss usss Sævar bauð mér út að borða vegna þess að hann var búinn að lofa því þegar ég væri búin í prófunum. Alltaf jafn sætur. ;)

Svo á morgun ættla ég að kíkja á hana yndislegu mágkonu mína, hún eignast sitt fyrsta barn einhverntíma í þessum mánuði og allir orðnir svo spenntir.  :D 

Jæja Sævar er að garga á mig þarf að hætta :haha::haha:  


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 14:58:30 / stína

Mánudagur

Var að klára tvö próf í dag eitt eftir :D

Er mjög pirruð út af því að ég náði ekki að klára stærðfræðiprófið :!: við vorum rúml. 10 manns sem gátum ekki klárað það vegna þess að kennarinn sem opnaði stofuna kom korteri of seint!!! Prófið var í 1,5 tíma  og ég hefði alveg náð að klára það hefði þetta ekki gerst.Svo var prófið 9 bls eiginlega of langt miða við tímann. Við fengum að vera inni í 5 mínútur í + 

En það þýðir ekkert að þræta dagarnir geta stundum bara verið svona. Ef ég fell þá tek ég það aftur og duxa enþá feitara :haha::haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 13:59:16 / stína

Fimtudagurinn 3 maí

jæja er í smá pásu núna, var að klára að lesa bók. Var orðin öfugsnúinn í sófanum og var kanski með of mikið af púðum undir hausnum því það er byrjuð að myndast þarna myndarleg undirhaka.

Jæja búin með pulsurnar ættla að fá mér einn kaffibolla.

    


» 4 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
16. mars 2010
Klukkan
Könnun
Hvenær kemur fyrsti snórinn ?
í lok ágúst
0 atkvæði

22 september :o)
1 atkvæði

September
0 atkvæði

Oktober
0 atkvæði

Nóvember
0 atkvæði

Desember
1 atkvæði

Kemur ekki þetta haust
0 atkvæði

Janúar
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 540 dögum
Afmælið mitt :)